Hvað er ljóstíðnimeðferð

Quantum Wave Laser er alveg nýr af nálinni og hjálpar mér að vinna dýpra og árangursríkara með skjólstæðingana mína. Ljóstíðnitækið finnur leið fyrir fóllk til að hjálpa líkamanum að heila sig sjálfan í gegnum slökun og endurnýjun eðlilegs orkuflæðis um vefi líkamans. Ljóstíðnitæknin hefur verið notuð til lækninga í yfir 30 ár og er mjög vel þekkt af læknum, dýralæknum, tannlæknum og sjúkraþjálfum svo eitthvað sé nefnt.

L
jósmeðferðin virkar á svipaðan hátt og sólarljósið sem skín á plönturnar og gefur þeim fótónur sem hvetur plöntuna til að vaxa hraðar og betur. Eins er það með frumur líkamans að þær drekka í sig þessar fótónur sem svo endurnýja vefi og frumur.

Comments